Textareitur

"..What?..You think I would let you drive in a fucking Hyundai.."
-Fast and the Furious: Tokyo Drift-

Jćja Fólk verđur nú ađ fara skrifa í gestabókinna og/eđa setja comment á bloggiđ mitt...ţađ er sko alveg must

Auglýsing

Könnun

Hvar er best ađ gera ţađ?

Leit

Skotland!!

02. apríl 2007 klukkan 17:48
Jæja núna fer ég í nótt uppá flugvöll og er bara orðin helvíti spenntur, ég fer um kl 5:00 uppeftir og verður það heví gaman að fara loksins frá þessu guðblessaða landi þarsem allt er að fara til fjandans og flestir að verða heimskari og heimskari (Þó reyndar ekki allir sem ég þekki þó svo sumir séu orðnir vel skýtnir), kemur greinilega fram í kommentum hér í síðasta bloggi en ég er hættur að vita hvað fólk er að væla þarna en greinilega er lífið þeirra eitthvað erfit og allt að fara norður og niður á meðan líf okkar hinna er bara í besta gír og allt gegnur mjög vel enda við flest í vinnu eða skóla og allt að gera sig :-)

En já svo ég tali nú um skotlands freðina meira þá fer flugvélinn um kl 7:00 á morgun og mun ég koma aftur einvhertíman fyrripart sunnudagsins 8 Apríl. En Þetta verður gegt gaman búið að plana partý og allt fyrir mann í þessari ferð.
Reyndar það leiðinlegasta er að ég missi af partý hjá Dóra og Önnu en það bjargast því ég er svo frekur og góður með mig að það verður bara haldið partý hjá þeim aftur fyrir mig, því hvaða partý er gott partý án mín :-) Ekki veit ég um það.

en jáh ég hef nú fát annað að segja en bara við sjáumst hress og kát þegar ég kem aftur því þá lifnar þetta land aftur við, enda deyr það aðeins þegar aðal maðurinn fer frá því
Reyndar verð ég að segja að það er kanski séns að kjellinn flytji til Ástralíu í ár eða svo, eða það er verið að gæla við það innan fjölskildunar að fara burt í langan tíma og hafa það kósí, skoða ný lönd og kynnast menningu og vinna erlendis. Enda nennir mar ekki að vera altaf fastur á þessum ís hér að eylífu. En þetta er nú bara hugmynd og ekkert alvarlegt.

En jáh við sáumst aftur elskunar mínar(þið vitið hver þið eruð) og þið hinn...já...veit ekki...
Kannski kemur eitt ferðablogg aldrei að vita :-D

PS: Færsluni hér að neðan hefur verið læst þarsem fleyri komment eru óþörf inná hana og greinilegt að sumir séu bara skrfia til að tjá sig(einvherjir á túr eða eitthvað) og eru ekkert að lesa þau svö frá öðrum þannig tilgangslaus að leyfa fleyri svör. Ég ætlaði mér ekki að læsa henni heldur læsa 
fyrir að hægt sé að kommenta en þetta er bara eina leiðin, ef vinir vilja lesa þessa
færslu þá bara spurja um aðgang að henni.

Peace..
Kjellinn kveður!
Ari Á. Jónsson
3 athugasemdir

Ţessi fćrsla er lćst međ lykilorđi.

27. mars 2007 klukkan 11:41
Ari Á. Jónsson
20 athugasemdir

Eitt en eftir langa biđ

22. mars 2007 klukkan 01:24
Jæja nú er víst kominn tími á að skrifa eitthvað hér svo allir haldi ekki að maðurinn sé dauður eða horfinn á braut.

Bíllinn:
Kjellinn á enþá hrossið aka Mustanginn, og líður honum bara ágætlega þarsem hann er og býður eftir að það komi útúr þessu veseni sem er búið að vera með hann undanfarið en ég nenni bara ekki að fara í það en það myndi taka alveg 3 - 4 blaðsíður í að segja frá en þeir sem hafa fylgst með vita nokkuð mikið um hvernig málinn standa í þessu og hvað hefur verið að ske.

Skólinn:
Ég búnað vera á fullu í skólanum, en eins og flestir vita er ég í Háskólanum í Reykjavík. Og gengur bara nokkuð vel þó svo ég segi sjálfur frá. enda ætla ég ekki að vera á einvherjum skíta launum það sem eftir er sætti mig sko klárlega ekki við það. Líður bara nokkuð vel þarna og skemti mér baaara vel, er að íhuga að læra ByggingaVerkfræði enda líst mér bara vel á það nám og atvinnu.

Lífið:
alt hjá mér gengur bara þokkalega vel, skólinn og allt utan þess. Er nokkuð mikið fyrir það að fá mér í glass um helgar hvort sem það sé hjá mér eða annarstaðar. Mar búnað kynnast slatta af nýju fólki og skemta sér mjög vel. Til dæmis skruppum Ég, Doddi og Fúsi til Reykjanesbæjar á skemmtistaðin Trix og var það svosem ágætt en ekkert meira en það. Hittum það Ásdísi og Sveinba (Supermann.is). En við hurfum þaðan fljólega þarsem þarna var ekkert spes gaman. En planið er að fara bráðlega á djamm á Selfossi, don't ask me why. En þar segir Fúsi að sé gegjað gaman á einvherjum nýjum stað þarna sem er milli Verahvergi (Hveragerðis) og Hnakkistancity (Selfossar) og við verðum nátla skoða það. Á víst að vera gegjað sveita stemming þar og dansað á borðum og shit sko.
En ég veit ekki hvað fleyra mar á að segja hér í bili ætla mér að reyna blogga meira. En jú eitt ég er að fara til Skotlands í 5 daga í apríl, og verður þar helvíti gaman. Vinir mínir og systurminnar eru búnað plana partý fyrir okkur þegar við komum þannig þetta verður baaara sweet ætla ég að vona hehehe...

En já segi bara bless og allt það

Kjellinn kveður!
Ari Á. Jónsson
Engin athugasemd

Íbúđ og lćti!

08. febrúar 2007 klukkan 22:33
Blessað veri fólkið!!

Já systir mín fékk loksins íbúðina sína afhenda í dag og var það alveg gegjað. Núna verður kjellinn að vinna í henni alla næstu viku í að koma henni í gegjað stand, þarf heldur minna að gera við hana heldur en þurfti við mína en samt slatti sem þarf að gera. Sniðugt að hún er bara nokkrum húsum frá íbúðinni hennar Ernu minnar fyrverandi sá hana akkurat ásamt Tedda labba framhjá áðan með Cesar hundin þeirra.
En það þarf td að taka parketið sem er og setja nýtt, gera við veggina niðurvið gólf, taka burt einn skáp og fleyra smotterí sem ég mun vera í enda reyndur í að taka íbúðir í gegn þar sem ég tók mína í gegn (auðvitað ekki alveg einn) og var með í að gera upp íbúðina hans Gísla vinar pabba, ásamt örðum þannig vinnum.

En já helgi að koma og kjellinn á leið í bekkjar partý á morgun ásamt því að það er spurning hvort mar fari á Sandi K. sem er að spila á Broadway annað kvöld. Nokkrir búnað spurja mann og segja manni að koma endilega og það er spurning að mar fari, myndi þá fara eftir bekkjar djammið og held mar færi bara með Fúsa og svo ætlar hún Birna babe hugsanlega að koma með manni ef hún fer ekki í bústað um helgina.
En hún Elín er að fara í bústaðar ferð um helgian með frænkusinni og að hugsa sér hún er að fara með Öggu, Hrefnu og Kristínu, fyrir þá sem ekki vita eru Agga og Hrefna systur minnar fyrverandi hennar Ernu. En ég væri að fara með ef það væri ekki fyrir bekkjarpartýið og svo er 60 afmæli í fjölskylduni á laugardeginum ásamt partý hjá Betu kærustu hans Svenna.

En já fleyra er það ekki núna svo ég segi bara PEACE!

Kv.
Kjellinn
Ari Á. Jónsson
4 athugasemdir

GOOD MORNING ICELAND!!

01. febrúar 2007 klukkan 20:59
Já Dagmar vínkona mín er búnað vera væla yfir að ég komi með blogg tilað fara í samkeppni við hana því hún bloggar úm bara flest allt og ekkert er heilagt hjá henni eða óblogghæft þannig hér kemur frumraun mín í þessu blogg mania :-D

Njótið!

Bílar bílar bílar, ætla rífa mig svoldið yfir þessum "undratækjum", lenti nefla í umræðu um hvort bílar séu 4 dyra eða 5 dyra og hvernig skilgreiningin er á þessu. Ég hef átt slatta af bílum og á nokkra góða vini sem vita meira helduren flestir um þessi fyrirbæri og trúi ég þeim mjög vel uppá að hafa hlutina rétta. Einn þeirra er meirasegja mjög fær á sviði bíla og annar kunning minn er hvorki meira né minna helduren 5 faldur íslandsmeistari í kvartmílu(í þau 5 ár sem hann keppti nú er hann bara að leika sér í þessu).
Sko nú hef ég átt nokkra bíla og margir með mismunandi fjölda af hurðum eins og td þá er Mustangin 2 dyra, Hondan var 4 dyra og Poloinn hennar mömmu er 5 dyra. Sú skildreining um hvort skottið sé tekið með sem hurð hefur alltaf verið hjá mér og mér hefur verið sagt vera sú að ef þú kemst inn um skottið þá telst það vera hurð, þá kemur upp svarið "mar getur tekið niður sætin afturí" og þá spyr ég eru öll skott þá ekki dyr því öll sæti eða flest held ég sé hægt að taka niður. En að ég held þá sé verið að sejga að þú komist inní bílinn gegnum skottið ánþess að þurfa fara fyrst í hann að framan og taka niður sætin, ef þú getur það þá getur þú talið skottið sem dyr inní bílinn.
Þetta er allavegana mitt álit og þeirra sem ég hef spurt og talað við um þetta í gegnum tíðina og altaf fæ ég þetta svar og þóað bílar séu skráðir öðruvísi á netinu þá er þetta samt mitt álit á þessu og mun vera. Ég mun td aldrei telja Mustangin minn vera 3 dyra því ég get tekið niður skottið eða Honduna vera 5 dyra...Polo dollan er 5 dyra enda kemst ég inní hann gegnum skottið og reyndar þarf ég að taka sætinn niður en ég get alveg slept því og troðið mér og ég get líka tekið þau niður og verið aftur þegar ég geri það því að það er opið inn í bílinn gegnum skottið og það liggur ekki útúr bílnum heldur er "inní" honum sem sagt hann er ekki sedan týpa af bíl eins og Hondan.

En jæja nóg um bíla og þetta umræðu efni veit að sumir urðu pirr á að ræða um þetta eða...já what ever..

Allt búnað vera gegt fun hjá bara skóli og skóli, kíkti niðrí Dreifingu á fólkið þar og var bara tekið alveg rosalega vel þar og er ég bara ánægður með það. Altaf gaman að koma þangað í heimsókn það eru allir alltaf svo hressir og í gúdí fýling allan daginn. Stundum létt pirraðir en það varir ekki lengi, mar getur ekki verið pirraður þarna á lagernum þegar sumir haga sér eins og fíbl 24/7...já þið vitið um hverja ég er að tala :-) hehehe
Já og í dag eða morgun erum ég og pabbi að fara og kæra bílasöluna sem seldi mér Mustanginn útaf veseni sem tæki mig marga tíma að reyna skrifa hér og útskýra þannig ég ætla sleppa því.

En já ég held að þetta sé bara mest allt sem hægt er að segja að sinni, önnur helgi að koma og ætli mar fái sér ekki í glass eins og flest hinar helganar :-D
Ari Á. Jónsson
1 athugasemd

Segja meira :-D

26. janúar 2007 klukkan 00:06
Jæja komið blessuð, það að segja þau sem nenna lesa þetta hja mér ;-)

Ekki fyrir starfsmenn Dreifingar þar sem bannað er að lesa blogg eða skoða vefsíður í vinnuni ;-) Yeah yeah yeah mar heyrði þetta oft :-D

Æg ætla byrja á að þakka öllum sem eru búinn að standa fyrir aftan bakið á Dóra og Önnu gegnum allar þær lygasögur sem eru búnað vera eins og gegjun núna síðustu vikur. Já það voru sko ekki ófáar sem komu og ekki skemtilegar, þar á meðal var: Anna að slíta Dóra frá vinum hans, Anna að halda framhjá Dóra með, já ég er ekki að joka, mér! og svo nátla alveg toppurinn að Anna hafi verið útúr dópuð í massífu dóp partý hjá mér um áramótin, jahá.

Þetta er nú bara ein mesta og fyndnasta rugl sem ég hef heyrt lengi. Dóp partý heima hjá mér?!? Um áramótin, jahá það má nú vera að það hafi verið drukkið mikið og skemt sér út í öfgar hjá mér um áramótin en dóp kom eki nálgat þeim stað og eru mörg vitni að því, það að segja fólk sem var þar en ekki Maggi og Hjördís sem komu ekki inn en segja þetta samt með þeim örruga heimildarmanni sínum henni Tinnu (Exinu hans Guðna, rosalega örrugur heimildarmaður...YEAH RIGHT kjaftæði) sem lét ekki sjá sig hjá mér og var henni ekkert boðið og þekki ég þá manneskju ekkert og hef engan áhuga á að þekkja.

En já þessar sögusagnir koma allar frá þeim Magga og Hjördísi og þá fynst mér fyndnast að Maggi skyldi tjá sig og ásaka aðra um framhjáhald og þá Hjördís líka þar sem Hjördís var með Óla (Einum af mínum bestu vinum of var hann líka besti vinur Magga) þegar hún og Maggi voru að dúlla sér saman. Helvíti gott svo kemur Maggi með comment á MSNinu sínu "Vinina fyrir kellinguna" eða eitthvað í þessa áttina og þá datt ég hlægjandi á gólfið alveg snild sko.

En já það er búið að vera tjá sig um þetta á heimasíðum Önnu og Dagmars endilega skoðið þar ef þið viljið sjá og lesa meira um þetta en ég nenni ekki að segja meira um þetta núna. :-)

En svo ég tali líka um mig aðeins því ég er nátla aðal efnið her á síðuni :-D en ekki mikið er að frétta af mér síðan síðast nema það kanski að kjellinn er bara búinn að skella sér í Háskólan í Reykjavík og gengur bara vel þar, það er bara mjög gaman þarna og gegjað stuð. Helvíti fínt að vera kominn í bekkjarkerfi þarsem mar er altaf með sömu krökkonum í tímum þá myndar mar betri tengsli við alla og svo er nátla bekkjar partý að fara skella á hjá okkur og held ég sko að það verði helvít skemtilegt.
Annars er flest lítið annað búnað vera ske hjá manni undanfarið.

Tja jú reyndar þá skellti ég mér á Nasa síðustu helgi (Skemtistaðinn ekki Jónas) á Playboy partý sem var þar og vá hvað það var gaman!! shit þetta var algjör gegjun, byrjaði reyndar á að fara í afmæli til Ölfu vínkonu minnar og það var gegjað stuð þar og fór svo þaðan á Nasa.

En já eki nei annað búnað vera ske, er að vesenast í að setja upp sjávarpan minn hér, kaupa snúrur og fesringar og mæla út hvar er best að hafa gerpið, en hann verður festur í loftið og þegar hann verður tilbúinn þá verður sko bíó hjá mér á hverju kvöldið a milli þess að mar sé að læra og spila XBox 360 sem ég mun auðvitað tengja við hann :-D bara snild sko.

en já nenni ekki að segja meira núna bara verið skemtileg í að commenta hjá mér og kanski fer mar að blogga á hverjum degi ;-)



Kv.
Kjellinn


PS: Þið í Dreifingu ættuð kanski að hætta lesa og byrja vinna aðeins ha?! ;-) Þá sérstaklega Gauji búnað heyra að þú sért altaf að skoða hjá mér og kvarta yfir að ekkert nýtt sé komið ha :-D hehehehe
Ari Á. Jónsson
4 athugasemdir

Hellingur!

09. desember 2006 klukkan 16:59
Jæja gott fólk veit að margir eru búna bíða altof lengi eftir að ég skrifi eitthvað skemtilegt hér og að eitthvað skemtilegt sé sett hér inná síðuna mína og ætla ég að setja allavegana nýjar myndir hér inn, td af Helenu Rut gellu frá Akureyri og líka Erlu hotty! og auðvitað nýrri skoðanakönnun en ég þarf bara fyst að fynna eitthverja netta en held það verði bara skegg vöxturinn og allt sem tengist því og spurt hvernig fólki fanst. En það eru bara dæmi um það sem mun koma hér enda er ég að fara opna myndasíðu þar sem ég mun reyna setja flestar myndir sem verða tekar hér heima hjá mér þegar verið er að skemta sér eða bara chilla og nátla myndir sem maður tekur þegar ekki er verið heima hjá mér.

En byrjum þetta blogg bara á einhverju góðu og ætla ég að setja þetta niður í hluta svo þetta verði ekki alveg algjör steypa hjá mér þegar ég er byrjaður á þessu.

Vinna!:
Já vinnan góða hún gengur bara nokkuð vel hjá manni fyrir utan að ég á erfit með að vakna á siðsamlegum tíma tilað leggja afstað í vinnuna svo mar mæti nú á réttum tíma en annars er allt mjög svo gott. Ég að leggja mig mikið fram en ætla taka mig miklu betur á svo mar fái nú góðan séns á launahækkun og kanski stöðuhækkun ef allt gengur vel og að óskum. Enda vil mar setja sig inn sem mikilvægan og helst ómissandi starfsmann og kanski kemur það á endanum

Skóli!:

Já þó ekki margir viti þá er kjellinn búnað vera í fjarnámi í bókfærslu og rekstrarhagrfæði í vetur og gengur bara vel, en prófinn voru að byrja búinn í 1 prófi en það var fyrr í vikuni og gekk það því miður ekki vel útaf mörgum ástæðum bæði kanski ekki nægum undirbúningi og að ég var með mikið af öðrum hlutun á heilanum sem trufluðu mjög og ég er með svolítinn prófkvíða þegar komið er að taka prófið. En lesblindan mín hamlaði mér ekkert í þessu svo ég tók eftir enda búnað taka vel á henni og bæta mig vel í henni og líka nátla prófkvíðanum sjálfum.

Lífið!:

Þetta gengur allt mjög vel hjá mér hér þóað mar búi einn og það getur verið svoldið einnmannalegt hér á tímabúnktum en ég hef það samt sem áður bara mjög gott og margir eru hjá mér í heimsókn á kvöldinn og dæginn(um helgar þá). En allavegana þá vita margir ef ekki flestir að ég keyoti mér nýjan bíl og þá ekki neinn kéttling enda er þetta rúmlega 330 hrossa kvikindi og engin smá kraftur. En nú vita ekki margir það að ég er að fara skila þessu dýri vegna þess að það var svindlað á mér í kaupum og fer ég í FÍB á mánudaginn eða þriðjudaginn og ég mun kæra þetta en þetta er flóknara en það sýnist og nenni ég ekki alveg að fara útí það hér. En ég mun festa kaup á nýjum um leið og þetta fer í gegn og verður það auðvitað annar Amerískut kaggi og ekkert annað til greina hjá mér enda er ég alveg fallinn fyrir þessum Amerísku bílum og þeim gífurlega krafti sem þeir eru með og held ég að Camaro SS verið fyrir valinu hjá mér en ekkert er komið alveg 100% og mun ég segja frá því þegar nær dregur. En jú myndir af Mustanginum eru á minnsirkus heimasíðunni minni og er slóðinn "arinice.minnsirkus.is" of getur fólk séð hann þar og skoðað. Ásamt nýlegum myndum af mér.
En já ég ákvað nú í síðasta mánuði að safna góðu skeggi bara uppá grínið og sjá hvað fólk myndi nú segja við mann en ég fékk nú bara góðar viðtökur við þessi nýja lúki mínu og set ég inn mynd eða myndir af því hér hvernig ég kom útt úr þessu en ég ákvað að raka mig aftur bara til að hreynsa þetta aðeins og mun ég örruglega safna aftur miða við að flest allat stelpur sem sáu mig svona lýkaði heldur vel við bara og var ég ánægður með þessar viðtökur sem komu. Þó að reyndar sumir voru heldur hissa enda aldrei búnað sjá kjellinn með skegg eldra en kanski 1 viknna eða mestalagi 2 viknna ef það skeði.
Fyrir þá sem vilja vita og þá sem búast við einhverjum upplýsingum um mitt ástarlíf, þá er ég en á lausu og verð bara segja a ég er ekkert búnað vera leita neit sérstaklega að því að koma mér á fast enda ekki búnað kynnast neit mörgum stelpum sem ég sé mig vera eitthvað með í sambandi og er þetta ekki ílla meint í þeirra garð heldur bara þá er ég svona og mun ekki breytast mikið frá því en auðvitað getur allt gerst og er ég ekkert að útiloka samband með einhverri enda getur allt skeð og margt breyst bara með að kynnast fólki og þannig og vita það allir að ekkert er alveg 100% örrugt alveg sama hvað fólk heldur.

Jæja nú er ég búnað koma úr mér allveg slatta af hlutum og þetta verður bara sett inn hér en ekki líka á minnsirkus en ég set nátla lítið blogg þar tilað láta vita af þessu svo fólk sem ég þekki þar sjái og geti lesið þetta. Getum kallað það einskonar auglýsingu á þessu bloggi hér.
En ég held að þetta sé gott í bili og alveg nóg fyrir fólk til að commenta yfir og segja eitthvað skemtilegt hvort sem hér eða á minnsirkus heimasíðunni
Ari Á. Jónsson
3 athugasemdir

I'm alive!!

12. október 2006 klukkan 22:37
Jáh gott fólk ég er lifandi og byrjaður aftur að skrifa hér eftir GOTT og LANGT frí!!

Ekki veit ég alveg hvar mar á að byrja eða hvort mar ætti bara sleppa því að reyna muna hvað gerst hefur. En júh mar bara búnað vera vinnandi flest alla daga og svo nátla notandi helganar í að djamma vel og vandlega tilað losa aðeins um hjá manni.

Einnig er kjellinn byrjaður á að lyfta á fullu eða ca 4-5 sinnum í viku og tekur mar þetta í góðum pörtum eða efripartinn eitt kvöldið og svo neðripartinn annað kvöldið svo vöðvarnir fái nú smá kvíld inná milli, en nátla einblínir mar ekki á að æfa bara efri og neðri til skiptis mar tekur auðvitað aðeins af báðum altaf bara meira af öðru hverju sinni ef þið skiljir mig. Svo er mar byrjaður á próteindrykk líka með þessu tilað fá auka orku en hef slept brenslutöflonum því ég brenn helvíti mikið að ég held ég þurfi þær ekki alveg strax allavegana svona til að byrja með.

Svo eru stór fréttir hjá mér heima, ég er að fara breyta stofuni minni allveg frá A til Ö. Jáh það verður kominn nýr sófi, ný hillusamstæða, sjónvarp burt fyrir skjávarpa, 1-2 góðir stólar og hugsanlega annað skrifborð. Svo þetta verður algjör breyting á stofuni hjá mér sem er bara flott mál. Hún er nefla helvíti lummó og lame eftir að ég lét Ernu taka hillusamstæðuna sem hún átti hér :-) og hugsanlega fær hún bara sjónvarpsskápinn ef hún vill hann líka því ég hef eki not fyrir hann þegar ég skipti út TV-innu fyrir skjávarpa sem er bara gegjað að vera með!!

Og júh mar má ekki gleima að hann einn besti félagi minn hann Haukur og kærastan hans hún Kristjana voru að eignast á fimtudaginn síðastliðinn eina GEÐVEIKT dúlló og ótrúlega sæta litla stelpu rassgat!! Alveg yndisleg og ég verð bara segja TIL HAMINGJU HAUKUR OG KRISTJANA!! Einu sinni enn :-P held ég sé búinn að segja þetta milljónsinnum við þau og þá sérstalega hann :-D

En Jáh svo er nýji bíllinn að fara koma í hún en hann hefur tafist um 2 vikur og er en að tefjast vegna þess að bankinn ef svo lengi að afgreiða þetta mál með lánið sem ég tek fyrir honum en ég sett inn myndir af honum þegar hann er 100% kominn í hús hjá mér og þá mun kjellinn rúnta um og sína sig í glæsivagninum sínum. Þetta mun vera Ford Mustang '95 og er hann gegjaður, þóað mér fynnist eldri bodyið miklu miklu fallegra og betra á er þessi með Cobra body kit sem gerir hann svaðalegan og svo auðvitað túrbína í honum og er hann ca 350 herstöfl, jæáh ekki smá kraftur og mun mar ekki vera neit að keyra eins og fíbl á þessum heldur fara með hann eins og á að gera við fallega bíla :-) þarsem ég á ekki krakka verður þetta bara litli engillinn minn þangað til það breytist (sem er ekki á leiðinni að gerast að ég viti)

Jáh svo komst ég að því að vinur Berglindar Rós telur mig vera líkan Robbie Williams...jáh ég trúði því ekki alveg en það er eitthvað við nefið á mér og munninn sem gerir okkur líka, enég sé þetta ekki og ekki þeir sem ég hef spurt úti það en núh kallar hún og hann mig víst Ari Williams, just for the fun of it. Já endilega hlægið veit ég gerið það þegar ég frétti þetta og geri það en :-D

En júh þetta er alveg vel nóg núna þannig mar bara kveður hér að sinni og reyni að blogga meira sem fyrst :-D

Kv.
Kjellinn!!
Ari Á. Jónsson
5 athugasemdir

OLA!

31. ágúst 2006 klukkan 06:25
Jæja jæja kjellinn er en hér og ekkert hættur þóað mar hafi nú ekki verið góður að blogga þennan mánuðinn en ætla setja eitthvað gott hér inn fyrir þá sem lesa þetta hjá mér.

Hér hjá mér er aðalega búnað vera á seyði djamm og vinna og smá afslöppun inná milli. Búnað þurfa mæta kl 6 í vinnuna slatti oft hjá Dreifingu sem er reyndar altílagi því mar fær extra bónus fyrir að mæta og nátla yfirvinnu ef mar vinnur eftir 14:00 :D sem er bara snild því kjellinn er á svo góðu yfirvinnu kaupi :D

En annars eru allar helganar búnað vera gegjað djamm hægri vinsti og svo núna um síðustu helgi var haldið eitt svaðalegasta djamm hingaðtil og fór engin ósáttur heim enda var það langt frameftir morgni. hingað komu allt helsta fólkið, gefa má dæmi um þá sem komu voru Ása, Berglind, Jenný, Jónas, Dagman, Anna, Tótó, Rixx, Dóri Dynamó, Frikki, Þoggi, Svavar og svo kom Aron um 2 leitið þegar afmælisdjammið hjá Ernu var búið.
Svo var alveg helling að þokkalega flottum kvenmönnum þarna, það flæddi eiginlega allt í þeim sem var bara gott mál.

En jáh klukkan orðinmargt og ég ekki í miklum blogg fýling sendi inn meira fljótlega.

Kv.
Kjellinn
Ari Á. Jónsson
2 athugasemdir

Vika og Verzló Kominn!

04. ágúst 2006 klukkan 06:34
Jæja mar búnað vera svo busý að mar hefur bara eki tíma til að blogga jafn mikið og maður hefur gert. En well vikan búnað vera æði ásamt síðustu helgi sem var bara sweet. Skelti mér í bæinn með Einari og Þogga það var bara nice sko. Fórum á hið alræmda "10 skota fyllerí" en í því felst að fara á 10 skemtistaði og fá sér eitt skot á hverjum stað fyrir sig og gera það á stuttum tíma, ekkert droll eða neit bara inn, eitt skot og svo nánast út. Við náðum því vel enduðum á Celtic Cross og var djammað þar feit frameftir morgni.
En svo á laugardaginn var ég ekki að nenna fara niðrí bæ enda er bærinn alltaf minna og minna spes og eiginlega ekkert skemtilegur nema stundum þannig ég bar bauð fólki hingað og við sátum hér all mörg að drykkju til um hálf 8 sunnudags morguninn.

En vikan er reyndar búnað vera rólegri en ég bjóst við, hélt að það yrði rosalegt útaf Verzló en svo varð ekki nema aðeins í dag (fimmtudaginn) og þá var reyndar ekkert neit sem mar höndlaði ekki en morgundagurinn verður bara sweet rólegur. En auðvitað náði ég að slasamig í vinnuni í dag með því að detta úr djúpfrysti rekka og var ég í ca 2 metra hæð og lenti reyndar sem betur fer á kössum en var engu síður helvíti vont enda allt frosið í hel þarna og ekkert mjúkt. En allavegna snéri mig smá á hægri öklanum en það lagaðist en er orðin slæmur í hægri hendinni og er svona eiginlega kraftlaus þar, en það hlítur nú að lagast bara með tímanum mar fer ekki til neinst helvítis læknis útaf smá málum, það bara bull og vitleisa.

En já verður svaka fjör hér um Verzló þarsem mar er bara í bænum og mun örugglega kíkja á Innipúkan og skoða stemminguna annars byrjar mar hér heima bara og sér hvað gerist. Verður bara helvíti næs eins og alltaf þegar ég held eitthvað teiti og vita þeir það best sem hafa komið.

*Já, hey ég gleymdi að minnast á ein hlut hér. Sú saga hefur víst verið að ganga að ég sé í einhverju dópi og veseni. Ekki veit ég hvaða aumingjar eru að reyna láta mig líta ílla út en ég hef nokkra aðila í huga og mun komast að því hver eða hverjir eru að þessum aumingjaskap.
Þessvegna vil ég segja hér að ég er ekki í dópi og má fólk bara sleppa þessu að reyna koma slæmu orði á mann tilað upphefja sjálfan sig í samanburði eða þannig vitleisu. Takk fyrir*

En já ekki meira að segja í bili bara reyni mitt besta að blogga hér sem mest og oftar

Kjellinn! Kveður

*uppfært/breytt 04.08*
Ari Á. Jónsson
3 athugasemdir